flugfréttir

Ný flugstöð tekin í notkun í Iqaluit á Baffinseyju

9. ágúst 2017

|

Frétt skrifuð kl. 17:44

Framkvæmdir við nýju flugstöðina hófust árið 2014

Íbúar í Baffinseyju í Kanada fagna nýrri flugstöð sem tekin var í notkun í dag á flugvellinum í bænum Iqaluit.

Flugstöðin mun taka við af þeirri gömlu sem þekkt er fyrir sinn skægula lit en nýja flugstöðin hefur verið þrjú ár í smíðum og nemur kostnaðurinn við framkvæmdir á flugvellinum um 25 milljörðum króna.

Nýja flugstöðin er átta sinnum stærri en sú gamla og er talið að hún muni geta þjónað Nunavut-héraði um flugsamgöngur til næstu 50 ára.

Kostnaðinum við framkvæmdirnar var skipt niður í tvennt á milli framkvæmda við flugstöðina sjálfa og endurgerð og lagfæringar á flugbrautum, flugbrautaljósum og öðrum flugvallarbúnaði.

Formleg opnunarhátíð mun fara fram í september

„Það virkar allt og allt er eins og það á að vera“, sagði John Hawkins, forstjóri flugvallarins í Iqaluit en í flugstöðinni er að finna mun meira úrval af þjónustu auk veitingastaða, kaffihúsa og verslanna.

Opnunarhátíðin sjálf mun fara fram í næsta mánuði en gula flugstöðvarbyggingin verður þó áfram notuð fyrir aðra flugþjónustu og fyrir flug á vegum ríkisstjórna landa auk Kanada.

Myndir:











  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga