flugfréttir
Júmbó-þota notaði 97 prósent af brautinni í flugtak
- Rangar upplýsingar í flugtölvu fyrir flugtak
Boeing 747-8F fraktþota Polar Air Cargo
Rangar upplýsingar, sem settar voru inn í flugtölvu á Boeing 747-8F fraktþotu, er talið hafa verið orsök atviks er júmbó-vél frá Polar Air Cargo hóf sig ekki á loft fyrr en 85 metrar voru eftir af flugbrautinni.
Atvikið átti sér stað á Narita-flugvellinum í Tókýó þann 15. júlí sl. og er um að ræða „alvarlegt flugatvik“ samkvæmt
japönskum flugmálayfirvöldum.
Vélin var á leið til Shanghai og fór hún í flugtak á braut sem er 2.500 metra löng og voru aðeins 85 metrar eftir af brautinni
þegar hún hóf sig á loft en undir venjulegum aðstæðum hefði hún átt að vera komin í 35 feta hæð þegar 326 metrar
voru eftir af brautinni.
Engann sakaði í atvikinu en skemmdir urðu á grindverkinu sem liggur í kringum flugvöllinn vegna knýsins frá hreyflinum
og þá tilkynntu íbúar í nærliggjandi húsum um „gríðarlegan hávaða“ frá flugvél sem fór óvenju lágt yfir í flugtaki.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.