flugfréttir
Icelandair leigir eina Boeing 757 þotu til Suður-Ameríku
- Verður notuð í flugi frá Santiago til Caracas og Bandaríkjanna
Boeing 757-200 þota Icelandair
Icelandair og Loftleiðir Icelandic hafa gengið frá leigusamningi á einni Boeing 757-200 þotu sem verður leigð til suður-ameríska flugfélagsins LAW (Latin American Wings) í Chile en félagið mun fá vélina í október.
Latin American Wings er áætlunarflugfélag sem flýgur meðal annars til Argentínu, Dóminíska Lýðveldisins, Haíti, Perú og
til Venezúela.
Félagið hefur í dag fimm Boeing 737-300 þotur í flotanum en með Boeing 757 þotu frá Icelandair mun félagið geta hafið flug
til New York og Miami í Bandaríkjunum frá Caracas í Venezúela og frá Santiago í Chile.
LAW mun verða annað flugfélagið í Chile til þess að fljúga til Bandaríkjanna á eftir LATAM ef ekki eru talin með þau bandarísku
sem fljúga í dag til Santiago.
Boeing 737 þota frá Latin American Wings
„Með þessari flugvél þá munu fullt af tækifærum opnast fyrir okkur sem er liður í að stækka hlutdeild okkar utan Rómönsku Ameríku“, segir Andrés Dulcinelli hjá LAW.
Boeing 757 þotan sem leigð verður til LAW kemur úr flota Icelandair og verður flogið af flugmönnum Icelandair.
Boeing 757 vélin verður fyrst um sinn notuð í flugi milli Santiago og Caracas í Venezúela og því næst verður flogið áfram til Miami
eftir að félagið fær leyfi frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) fyrir því flugi en leyfi fyrir flugi milli Chile og Bandaríkjanna með viðkomu í Venezúela er háð takmörkunum.
„Það er mikið ánægjuefni að þessi samningur er í höfn. Mótaðilar okkar eru að kaupa þá reynslu og sérþekkingu sem starfsfólk fyrirtækja innan Icelandair Group býr yfir og við hlökkum til samstarfsins“, segir Halldór Halldórsson, framkvæmdastjóri hjá Loftleiðum Icelandic.
Þá stendur einnig til að nota Boeing 757 þotuna í flugi milli Santiago og borgarinnar La Romana í Dóminíska Lýðveldinu frá og
með janúar á næsta ári með möguleika á flugi til Punta Cana.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.