flugfréttir
Þotu Ryanair snúið við vegna vandamála með stýrisstilla
- Farþegi um borð tilkynnti um torkennileg hljóð
Boeing 737-800 þota Ryanair
Farþegaþotu af gerðinni Boeing 737 frá Ryanair var snúið við til Kaupmannahafnar skömmu eftir flugtak eftir að farþegi, sem sat aftarlega í vélinni, tilkynnti áhöfninni um furðulegt hljóð sem hann heyrði aftast í vélinni.
Vélin var á leið til Alicante þegar atvikið átti sér stað og var vélin komin í 6.000 feta hæð þegar
í ljós kom að á ferðinni var vandamál með stýrisstilla vélarinnar (stab trim).
Vélin fór í biðflug og hringsólaði í um 1 klukkustund og 20 mínútur yfir Danmörku til að brenna
eldsneyti áður en hún lenti aftur á flugvellinum
í Kaupmannahöfn.
Í tilkynningu frá Ryanair segir að vélin hafi snúið við eftir að viðvörunarljós kviknaði í stjórnklefa
vélarinnar varðandi tæknilega bilun í stýrisstillum.
Til að draga úr seinkun ákvað Ryanair að senda flugvirkja frá Stansted-flugvellinum í London til
Kaupmannahafnar svo þeir gætu gert við vélina eins fljótt og hægt var eftir lendingu.
Vélin fór aftur í loftið 5:30 klukkustundum síðar áleiðis til Alicante.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.