flugfréttir
Emirates fær tvær fyrstu SR22 G6 kennsluvélarnar frá Cirrus
Önnur Cirrus SR22 G6 kennsluvélin fyrir Emirates Flight Training Academy á flugi
Flugakademía Emirates hefur fengið afhentar tvær fyrstu Cirrus SR22 G6 kennsluvélarnar af þeim 22 sem pantaðar voru.
Nokkra daga tók að fljúga vélunum frá verksmiðjum Cirrus Aircraft í Minnesota til Dubai
en afhendingarflugið var yfir 13.000 kílómetra langt.
Vélarnar fóru í loftið frá Duluth í Minnesota til Knoxville í Tennessee þar sem afhendingarmiðstöð
Cirrus Aircraft er staðsett en þar fóru sérfræðingar frá framleiðandanum yfir vélina
auk þess sem aðilar frá Emirates Flight Training Academy skoðuðu vélarnar fyrir brottför.
Loks kom að afhendingarfluginu sjálfu en vélarnar höfðu viðkomu á 11 flugvöllum á leiðinni
í 10 löndum og þar á meðal á Íslandi en að meðaltali var flogið í 5 klukkustundir á dag.
Önnur Cirrus SR22 G6 kennsluvélin fyrir Emirates Flight Training Academy á flugi
Vélarnar, sem hafa skráninguna A6-CTA og A6-CTB, komu við í Portsmouth í New Hampshire,
Sept Iles á Labrador, Iqaluit á Baffinseyju en flugið frá Nuuk til Reykjavíkur og áfram
til Wick á Skotlandi voru lengstu leggir ferðarinnar.
Þaðan var flogið til Sywell, norður af Northampton á Englandi, áfram til Feneyja, Krítar,
Aqaba í Jórdaníu, Bahrain og að lokum lent í Dubai. Allar flugferðirnar á leiðinni voru farnar í dagsbirtu.
Cirrus SR22 vélarnar verða burðarásinn í flugþjálfun Emirates á næstunni sem mun fara
fram á Dubai World Central flugvellinum sem verður tekinn í notkun í nóvember í vetur.
Cirrus Aircraft hefur framleitt yfir 5.100 eintök af SR22 flugvélinni frá árinu 2001
en eitt eintaf af þessari flugvél kostar um 56 milljónir króna.
SR22 G6 er nýjasta SR22 vélin frá Cirrus (Generation 6) en miklar uppfærslur hafa verið
gerðar með þessari útgáfu á vélinni sem kemur með nýrri stjórntækjum og nýjum
siglingarljósum.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.