flugfréttir
Yfir 528.000 farþegar með Icelandair í ágúst
- Annað sinn sem Icelandair flýgur með yfir hálfa milljón farþega
„Svörtuborgir“, Boeing 767 þota Icelandair
Yfir 528 þúsund farþegar flugu með Icelandair í ágústmánuði síðastliðnum sem er 10 prósenta aukning frá því í ágúst árið 2016.
Þetta er í annað sinn sem farþegafjölda Icelandair fer yfir 500.000 en í júlímánuði
flugu 540.000 farþegar með félaginu sem er metfjöldi í sögu félagsins í einum mánuði.
Nákvæm tala sýnir að 528.699 farþegar flugu með Icelandair í júlí en ágúst
er annar stærsti mánuður ársins hjá Icelandair sem og hjá mörgum öðrum flugfélögum.
Farþegar Air Iceland Connect voru 39 þúsund í ágúst og fjölgaði um 4% á milli ára.
Framboðsaukning á milli ára nam 12% og sætanýting var 87,9% samanborið við 87,6% á sama tíma í fyrra.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.