flugfréttir
Norskir flugmenn hjá SAS boða til verkfalls á fimmtudag
Flugvélar SAS á Gardermoen-flugvellinum í Osló
Samningaviðræður hafa farið út um þúfur meðal SAS (Scandinavian Airlines) og félag norskra atvinnuflugmanna og hafa norskir flugmenn hjá félaginu boðað til verkfallsaðgerða frá og með næstkomandi fimmtudegi.
Viðræður áttu sér stað í nótt meðal flugmanna hjá SAS í Noregi og stjórn félagsins og voru tveir flugmenn
sem lögðu niður störf sín í gær á undan fyrirhuguðu verkfalli sem mun lama flug á vegum félagsins til
og frá Noregi.
„SAS hefur ekki sýnt vilja til að koma til móts við kröfur flugmanna sem er að leyfa þeim að njóta
sömu kjara og starfsbræður þeirra í Danmörku og í Svíþjóð“, segir Jens Lippestad hjá félagi norskra
atvinnuflugmanna.
Lippestad segir að ástandið sé óásættanlegt og muni þetta aðeins bitna á farþegum en talsmaður
SAS segir að félagið sé að vinna að því koma í veg fyrir verkfallsaðgerðirnar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.