flugfréttir
Flugstjóri sviptur leyfinu fyrir að hafa reykt í stjórnklefanum
Flugmaður reykir um borð í stjórnklefa á McDonnell Douglas DC-10 breiðþotu á áttunda áratugnum
Flugmálayfirvöld á Indlandi hafa svipt flugstjóra réttindum sínum eftir að hann var staðinn að því að reykja í stjórnklefa um borð í flugvél sem hann flaug á vegum asíska lágfargjaldafélagsins AirAsia India.
Flugstjórinn á að hafa reykt um borð Airbus A320 þotu í ferjuflugi er hann flaug tómri vél, án farþega, milli Hyderabad og Delhi
í seinasta mánuði.
AirAsia segist hafa sagt flugstjóranum upp störfum á meðan rannsókn á atvikinu fer fram en flugfélagið vinnur
að rannsókn þess í samstarfi við indversk flugmálayfirvöld.
Reykingar um borð voru leyfðar á Indlandi fram til níunda áratugarins en eftir að þær voru bannaðar var flugmönnum
leyft að reykja áfram en það var einnig bannað í kjölfarið skömmu síðar.
Þetta er í fyrsta sinn í 9 ár sem flugstjóri á Indlandi er uppvís um að reykja í flugi en hann mun missa skírteinið sitt
í a.m.k. þrjá mánuði.
Airbus A320 þota AirAsia India
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.