flugfréttir
50 nýir flugvellir í Kína fyrir fraktflug fyrir 2020
Mikil aukning hefur orðið á fraktflugi til og frá Kína
Kínverjar hafa ekki verið þekktir fyrir að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur er kemur að framkvæmdum.
Til stendur að hefja framkvæmdir á allt að 50 flugvöllum í Kína eingöngu fyrir fraktflug sem eiga að verða
tilbúnir til notkunar árið 2020 eða eftir rúm tvö ár.
Þetta kom fram á blaðamannafundi í dag þar sem þróunarnefnd flugmálayfirvalda í Kína tilkynntu
um fyrirhugaða flugvelli sem til stendur að hrinda í framkvæmd.
Með þessu umfangsmikla verkefni verða búnar til 68 nýjar flugbrautir á flugvöllunum fimmtíu sem munu
koma með 1.832 flugvélastæðum og fraktbyggingum sem til samans hafa flatarmál
upp á 7 milljónir fermetra.
Kínverjar hafa fjárfest í flugmálum í landinu fyrir yfir 12 þúsund milljarða króna frá árinu 2012 en síðan
þá hafa orðið til 53 nýir fraktflugvellir með 48 flugbrautum og 971 flugvélastæði.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.