flugfréttir
Klæðning af Boeing 777 þotu KLM í flugtaki féll ofan á bíl
- Losnaði af í flugtaki í 8.000 fetum
Klæðningin, sem er 1 meter x 60 cm, vegur 4 kíló
Engann sakaði þegar hluti af klæðningu á skrokk á Boeing 777 þotu KLM Royal Dutch Airlines losnaði af í flugtaki í japönsku borginni Osaka í gær.
Vélin, sem er af gerðinni Boeing 777-300ER, var komin í 8.000 feta hæð
eftir flugtak frá Kansai-flugvellinum áleiðis til Schiphol í Amsterdam
þegar klæðning nálægt hægri væng vélarinnar féll af.
Hluturinn, sem er 1 meter á hæð og 60 sentimetrar á breidd, lenti ofan á þaki á bíl sem var á ferð á umferðargötu í Osaka með þeim afleiðingum að beygla kom
á topp bílsins auk þess sem afturrúðan brotnaði.
Tveir voru í bílnum og varð þeim ekki meint af. Vélin lenti á Schiphol-flugvellinum 11 klukkutímum síðar
Klæðningin lenti ofan á bíl sem var á ferð eftir götum Osaka
Í yfirlýsingu frá japönskum yfirvöldum kemur fram að um klæðningu fyrir ofan vængrótina er að ræða sem eykur straumlínulögunina til að draga úr viðnámi.
Rannsóknarnefnd flugslysa í Japan rannsakar atvikið í samstarfi við
KLM Royal Dutch Airlines og Boeing.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.