flugfréttir
Þrjár júmbó-þotur til sölu á uppboði á Alibaba.com
Sex sinnum hefur verið reynt að selja júmbó-þoturnar þrjár á hefðbundnu uppboði en án árangurs
Þrjár júmbó-þotur eru nú til sölu á uppboði á vefsíðunni Alibaba.com en allar vélarnar eru fraktvélar af gerðinni Boeing 747-400ERF.
Frá því í október árið 2015 hefur sex sinnum verið
reynt að selja vélarnar á uppboði en án árangurs þar sem ekki fékkst lágmarksboð
í þær.
Þoturnar þrjár voru allar í eigu kínverska fraktflugfélagsins Jade Cargo sem varð
gjaldþrota árið 2014.
Samkvæmt Alibaba.com þá er þetta í fyrsta sinn sem Boeing 747 er
seld á uppboði á Netinu í kjölfars úrskurðar dómstóls sem sér um uppboðið
sem lýkur þann 20. nóvember.
Ein af júmbó-fraktþotum Jade Cargo í lendingu á flugvellinum í Barcelona árið 2011
Alibaba hefur séð um uppboð eftir dómsúrskurð frá árinu 2012 en um 99% af
öllum nauðungaruppboðum í Kína fara fram á vefsíðunni.
Uppboðið byrjar í 2 milljörðum króna fyrir hverja þotu en tvær vélanna voru smíðaðar árið 2007
og sú þriðja árið 2008 og eru þær því um 10 ára gamlar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.