flugfréttir
LEVEL stefnir á 30 breiðþotur á fimm árum
Willie Walsh, framkvæmdarstjóri Internatinal Airlines Group (IAG)
Willie Walsh, framkvæmdarstjóri International Airlines Group (IAG) segir að LEVEL, nýtt lágfargjaldafélag í langflugi, muni koma til með að vera komið með 30 breiðþotur eftir fimm ár.
International Airlines Group kynnti LEVEL flugfélagið í mars á þessu ári en fyrsta flugið var flogið í júní
í sumar frá Barcelona sem er fyrsta bækistöð félagsins.
LEVEL flýgur undir spænsku flugrekstarleyfi frá Iberia og hefur félagið í dag tvær breiðþotur af gerðinni
Airbus A330-200 í flotanum.
Fleiri bækistöðvar munu bætast við en ekki hefur verið tilkynnt hvaða borg verður næsta
starfsstöð félagsins en orðrómur hefur verið á kreiki um að félagið muni næst gera út frá París og Róm.
Walsh tilkynnti fyrir helgi að stefnt er á að floti félagsins muni telja 13 þotur árið 2019 og þrjátíu vélar árið
2022.
LEVEL seldi 52.000 flugsæti á fyrsta deginum eftir að farmiðasala hófst sem var langt fram yfir
væntingar félagsins.
„Það eru þrjár þotur á leiðinni til viðbótar og við erum að skoða möguleika á að auka umsvifin
frá Barcelona en tvær evrópskar borgir koma einnig til greina sem eru París og Róm“, segir Walsh.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.