flugfréttir

Alaska Airlines mun hætta með Boeing 737-400 Combi

26. september 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:18

Boeing 737-400C (combi) þota Alaska Airlines

Alaska Airlines hefur tilkynnt að félagið muni í október hætta með Boeing 737-400C (Combi) flugvélarnar en félagið hefur fjórar slíkar þotur eftir í flotanum.

Aðalþilfar Boeing 737-400 Combi vélanna samanstendur af fraktrými að framan á meðan farþegarými, fyrir 72 farþega, er staðsett fyrir aftan og nær frá miðri vélinni að stélinu.

Alaska Airlines er eina flugfélagið af stóru félögunum í Bandaríkjunum sem hefur „combi“ flugvélar sem flytja bæði frakt og farþega en vélarnar geta tekið fjóra, stóra gáma af flugfrakt að framan á meðan farþegar ganga um borð að aftan.

Alaska Airlines mun skipta Boeing 737-400 Combi flugvélunum út fyrir Boeing 737-700F fraktvélar og verða farþegum og frakt eftir það flogið í sitthvoru lagi þar sem 737-900ER þotur munu leysa hluta farþegaflugsins af.

Veggur skilur að farþegarýmið frá fraktrýminu

Síðasta flugið með Boeing 737-400 Combi verður flogið þann 18. október frá Seattle til Juneau, höfuðstaðs Alaska.

Alaska Airlines fékk fyrstu 737-400 vélarnar afhentar árið 1992 en árið 2007 var þeim breytt í combi-vélar og var félagið það fyrsta í heimi til þess að nota blandaða frakt- og farþegaþotu af gerðinni Boeing 737-400.

Alaska Airlines hefur eina fraktþotu fyrir af gerðinni Boeing 737-400F þotu en þrjár Boeing 737-700F þotur munu bætast við flotann á næstunni.

Fleiri myndir:









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga