flugfréttir
Kona með barn í fanginu féll fram af Airbus A321 þotu
Sjúkraliðar og flugvallarstarfsfólk á vettvangi
Kona, með ungabarn í fanginu, féll úr flugvél niður á flughlað er hún gekk frá borði eftir flug með Airbus A321 þotu frá rússneska flugfélaginu Ural Airlines á Pulkovo-flugvellinum í Pétursborg sl. fimmtudag.
Vélin var nýlent eftir flug frá Moskvu og voru farþegar að ganga úr vélinni
með aðstoð stigabíls þegar hjarir á framlengingargólfi, sem brúar bilið frá efsta þrepinu að útgangnum, gaf sig.
Einn farþegi, 44 ára gömul kona, með eins og hálfs árs gamla dóttur sína í fanginu, féll niður þrjá metra niður á flughlaðið.
Bæði móðurinn og barnið eru alvarlega slösuð að sögn rússneskra fréttamiðla
en barnið missti meðvitund og gekkst undir aðgerð á sjúkrahúsi í Pétursborg.
Á myndinni má sjá hvernig hlerinn gaf sig stigabílnum
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.