flugfréttir

Kalla Ryanair „Norður-Kóreu“ flugsins

- Flugfreyjur og flugþjónar hóta hópuppsögnum og fara yfir til easyJet

5. október 2017

|

Frétt skrifuð kl. 17:23

Flugfreyja um borð í Boeing 737-800 þotu Ryanair

Flugfreyjur og flugþjónar hjá Ryanair ætla að skipuleggja verkfall á næstunni til að mótmæla vinnuumhverfi sínu auk þess sem margir ætla sér að taka þátt í hópuppsögnum og fara yfir til easyJet.

Flugliðar félagsins hafa verið ósátt við ýmiss atriði innan veggja Ryanair og þar á meðal þá staðreynd að þau fá ekki að vera í verkalýðsfélagi og einnig þá fá þau aðeins borguð laun fyrir flugtíma en ekki þann tíma sem fer í að starfa á jörðu niðri áður og eftir að vélin fer í loftið eða lendir.

Ein flugfreyja segir í samtali við breska dagblaðið The Telegraph að Ryanair sé „Norður-Kórea“ flugsins og segir m.a. frá því að þau þurfa að greiða fyrir drykkjarvatn, samlokur en Ryanair segir að vinnuumhverfi félagsins fyrir flugliða sé mjög gott og feli í sér mörg fríðindi.

Flugfreyjur segja að þær þurfi meðal annars að borga leigu
af búningunum

„Ástandið er að versna. Það er sagt að við vinnum 100 tíma á mánuði. Ég svaraði: „Vinna? - við fáum borgað fyrir 100 klukkustundir á mánuði en við vinnum svona 140 til 160 tíma þar sem Ryanair lítur ekki á viðsnúningstíma á flugvelli sem starf“, segir ein flugfreyjan sem bendir á að flugfreyjur Ryanair þurfi að greiða 20 pund á mánuði fyrir leigu á flugfreyjubúningunum.

„Ég á marga vini sem starfa fyrir easyJet, Norwegian og Wizz Air. Það er ekki hægt að bera saman þessi starfsumhverfi“.

Tvær flugfreyjur, sem The Telegraph ræddi við, segja að stofnuð hafi verið „grúppa“ á Facebook þar sem flugfreyjur og flugþjónar eru að ræða saman næstu skref í málinu.

Róðurinn hefur verið erfiður sl. vikur hjá Ryanair sem hefur þurft að endurskipuleggja rekstur sinn í vetur með því að fella niður fjölda flugferða þar sem ekki hafa fengist flugmenn til að fljúga öllum vélunum.

Ryanair segir að um klúður sé að ræða við skipulaggningu á sumarleyfum en aðrar heimildir herma að ástæðan sé sú að fjölmargir flugmenn hafi sagt upp og farið yfir til annarra flugfélaga.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga