flugfréttir

Þyrla frá Air Greenland finnur brak úr hreyfli þotu Air France

- Fundu staðsetningu braksins með gögnum úr flugrita risaþotunnar

5. október 2017

|

Frétt skrifuð kl. 19:05

Þyrla frá Air Greenland fann brak úr hreyfli Airbus A380 risaþotu Air France í gær

Brak úr hreyfli á Airbus A380 risaþotu Air France, sem bilaði í miðju flugi milli Parísar og Los Angeles sl. laugardag, hefur fundist á ísþöktu svæði við jökuljaðar á vesturströnd Grænlands.

Það var þyrla frá Air Greenland sem kom auga á brakið í gær sem hafði fallið til jarðar úr 37.000 fetum í kjölfar sprengingar í einum af hreyfli þotunnar en um hreyfil nr. 4 var að ræða.

Vegna atviksins var ákveðið að fara út af áætlaðri flugleið og lenti risaþotan á flugvellinum í Goose Bay á Nýfundnalandi 2 klukkustundum síðar en um borð voru 497 farþegar og tólf manna áhöfn.

Flugslysanefndin í Frakklandi tilkynnti í dag að með upplýsingum úr flugrita risaþotunnar var hægt að finna nákvæma staðsetningu yfir Grænlandi þar sem sprengingin í hreyflinum átti sér stað.

Hreyfillinn á Airbus A380 risaþotunni eftir lendingu á
flugvellinum í Goose Bay

Staðsetningin er 81 nm (150 kílómetrar) suðaustur af bænum Paamiut en með þau gögn í hendi var þyrla frá Air Greenland send á vettvang í gær og kom áhöfn þyrlunnar auga á brak úr hreyflinum.

Stefna á að reyna ná brakinu og koma því til rannsóknaraðila

Flugslysanefnd Danmerkur mun vinna að því í samstarfi við frönsk yfirvöld að skipuleggja björgunarleiðangur til að koma því í hendur flugslysaséfræðinga.

Á meðan munu flugslysasérfræðingar í Frakklandi halda áfram að vinna úr gögnum úr flugritanum en risaþotan sem um ræðir er enn á flugvellinum í Goose Bay.

Að rannsókninni koma flugslysasérfræðingar frá samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB), rannsóknarnefnd flugslysa í Kanada auk þess sem sérfræðingar frá Engine Alliance og frá Frakklandi voru sendir til Goose Bay.

Fyrstu vísbendingar benda til þess að eitt af viftuhjólum túrbínunar hafi losnað með þeim afleiðingum að sprenging varð í hreyflinum sem braut í burtu fremri hreyflahlífina auk annarra hluta í kjarna hreyfilsins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga