flugfréttir

Flugið á Indlandi mun þrefaldast á næstu 15 árum

- 40 milljón farþegaaukning milli ára

9. október 2017

|

Frétt skrifuð kl. 11:45

Frá flugvellinum í Bombay á Indlandi

Indverjar sjá fram á að flugsamgöngur í landinu eigi eftir að þrefaldast á næstu 15 árum.

Nú þegar hefur flugið á Indlandi tvöfaldast í umsvifum á seinustu 4 árum og er talið að með sama áframhaldi muni flugumferð þrefaldast til ársins 2032.

Jayant Sinha, flugmálaráðherra Indlands, segir að gert sé ráð fyrir að farþegafjöldinn muni fara í 200 milljónir á Indlandi fyrir lok næsta fjármálaárs en farþegafjöldinn á fjármálaárinu 2017 fór í 160 milljónir.

Þrátt fyrir gríðarlegan vöxt í fluginu þá eru Indverjar á eftir Kínverjum þar sem 500 milljónir farþega fljúga árlega í Kína og Bandaríkjunum sem hafa 900 milljónir flugfarþega árlega.

Jayant Sinha, flugmálaráðherra Indlands

„Við erum með 500 farþegaflugvélar í loftinu á degi hverjum og það er búið að panta 650 flugvélar til viðbótar og þar af leiðandi verðum við að tryggja áframhaldandi öryggi í fluginu“, segir Sinha.

Sinha bendir á að flugfargjöld séu að verða álíka ódýr og lestarferðir á Indlandi og sé mun fleira fólk sem er hætt að taka lestar milli borga á Indlandi og kjósa að fljúga frekar.

Eins og í mörgum öðrum svæðum heimsins þá telur Sinha að á næstu árum verði tvö til þrjú stór móðurflugfélög á Indlandi sem munu eiga nokkur minni flugfélög líkt og í Evrópu og Bandaríkjunum.

Stærstu flugfélögin á Indlandi í dag eru Air India, Spicejet, Jet Airways, IndiGo og GoAir.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga