flugfréttir
PIA Pakistan mun hætta flugi til Bandaríkjanna
Boeing 777 þota PIA Pakistan International Airlines á Kennedy-flugvellinum í New York
PIA (Pakistan Internatinal Airlines) mun hætta að fljúga til Bandaríkjanna í lok þessa mánaðar vegna gríðarlegs taps á fluginu.
Félagið pakistanska hefur flogið tvisvar í viku frá Lahore til Kennedy-flugvallarins í New York með viðkomu í Manchester en eftirspurn eftir fargjöldum hefur verið mjög dræm.
Yfirmenn hjá PIA segja að félagið hafi verið að tapa 1,2 milljarði árlega á flugleiðinni og hefur því
verið ákveðið að hætta fluginu til New York sem er eini áfangastaður félagsins í Bandaríkjunum í dag.
Áfangastaðir PIA í Bandaríkjunum voru eitt sinn fleiri en félagið flaug m.a. til Chicago, Houston og
til Washington en því flugi hefur verið hætt.
Síðasta flugið til New York verður flogið þann 28. október en félagið mun samt halda áfram
að fljúga til Toronto í Kanada.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.