flugfréttir
Silk Way ætlar að panta fleiri Boeing 747-8F fraktþotur
Boeing 747-8F fraktþota Silk Way Airlines
Silk Way Airlines ætlar sér skrifa undir samkomulag við Boeing á næstunni um pöntun á fleiri Boeing 747-8F júmbó-fraktþotum fyrir lok ársins.
Silk Way Airlines ætlar sér að panta tvær Boeing 747-8F þotur til viðbótar að sögn
Jahangir Asgarov, forstjóra félagsins, en félagið hefur nú fimm Boeing 747-8F í flotanum.
Asgarov tilkynnti um fyrirhuguð kaup á Caspian Air Cargo ráðstefnunni sem hófst í Baku
sl. þriðjudag en hann tók fram að undirbúningur vegna pöntunarinnar væri nú í gangi.
Silk Way Airlines flýgur í dag til 60 landa en á seinasta ári bætti félagið við 11 nýjum
fraktflugleiðum við leiðarkerfi sitt.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.