flugfréttir

Flugmenn í Evrópu kalla eftir stuðningi með hópfjármögnun

- Flugmenn hræddir við að tjá sig um starfsmál vegna ótta frá yfirmönnum

30. október 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:09

Í tilkynningu frá Eurocockpit kemur fram að allir flugmenn eigi rétt á að standa vörð um sinn rétt án þess að verða refsað fyrir það.

Farið hefur af stað hópfjármögnun á Netinu til að styrkja við aðgerðir flugmanna í Evrópu sem berjast fyrir rétti sínum til tjáningarfrelsis gangvart stjórnendum og yfirmönnum.

Margir flugmenn hafa misst vinnuna í kjölfar fjölda aflýstra flugferða og þá sérstaklega hjá félögum á borð við Ryanair en einnig eru margir flugmenn sem þora ekki að stíga fram og tjá sig varðandi þær aðstæður sem þeir eru í hjá þeim flugfélögum sem þeir starfa.

Margir flugmenn hræðast að tjá sig um ýmiss málefni varðandi störf sín af ótta við uppsögn ef þeir viðra skoðanir sínar opinberlega en mörg dæmi eru um að þeir sem hafa stígið fram og rætt slíka hluti hafi verið kallaðir inn á teppið og jafnvel reknir úr starfi.

Eurocockpit stjórna hópfjármögnuninni

„Enginn flugmaður á að vera hræddur við að tjá sig um stöðu sína og greina frá áhyggjum sínum og þeir eiga ekki að vera undir einhverskonar pressu frá yfirmönnum sínum“, segir í tilkynningu.

„Þessi hópfjármögnun er viðvörunarmerki um að hlutirnir eru að fara á rangan veg í fluginu í Evrópu en það eru ekki öll flugfélög sem virða þau lögmál sem lúta að tjáningarfrelsi flugmanna“, segir í fréttatilkynningu frá European Cockpit Association.

Flugmenn hjá Ryanair heimta að gerðir verði fastir samningar við þá og flugmenn hjá öðrum flugfélögum leita eftir stuðningi frá öllu flugsamfélaginu og starfsbræðrum sínum í Evrópu til að geta tjáð sig án þess að óttast skammir eða brottrekstur.

Það er European Cockpit Association sem stjórnar fjármögnuninni og kemur fram í tilkynningu frá samtökunum að allir flugmenn eigi rétt á að standa vörð um sinn rétt án þess að verða refsað fyrir það.

Hópfjármögnunin notar myllumerkið #PilotUnity og má lesa nánar um verkefnið á vefsíðu Gofundme.com







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga