flugfréttir

Boeing 767 sniðug lausn þar sem Dreamliner er of dýr

- Telur sniðuga lausn ef Boeing myndi framleiða 767 aftur sem farþegaþotu

31. október 2017

|

Frétt skrifuð kl. 14:14

Boeing 767 er í dag aðeins framleidd sem fraktþota og sem eldsneytisvélin KC-46

Áform Boeing um að hefja aftur smíði á farþegaþotuútgáfu af Boeing 767 gæti komið sér vel fyrir lágfargjaldaflugfélög og þau flugfélög sem hafa ekki efni á Dreamliner-þotunni.

Þetta segir Dhierin Bechai, markaðssérfræðingur í flugmálum hjá AeroAnalyst í London sem segir að Boeing 787-8 sé þó með lengra flugdrægi og sé hagkvæmari í rekstri en Boeing 767-300ER en Dreamliner-vélin kemur þó með verðmiða sem fá flugfélög ráða við.

„Vandamálið fyrir flugfélögin er kostnaðurinn. Boeing 787-8 kostar 23 milljarða króna en kostnaður við kaup á nýrri Boeing 767-300ER þotu er 40% lægri“, segir Bechai.

Boeing hefur ekki staðfest hvort að til standi að hefja aftur framleiðslu á farþegaútgáfunni af Boeing 767 en framleiðandinn hefur beðið birgja um að gera grein fyrir því hvort þeir geti aukið afköst sín svo hægt sé að tvöfalda afkastagetuna á Boeing 767 framleiðslunni.

Boeing 767-200 þota fyrir framan verksmiðjur Boeing í Everett

Bechai segir að það sé alls ekki slæm hugmynd að hefja aftur framleiðslu á Boeing 767 farþegaþotunni en í dag eru aðeins framleiddar Boeing 767 fraktþotur og eldsneytisvélin KC-46 sem byggir á Boeing 767.

Bechai segir að það sem flugfélögin þoli ekki sé óvissa og getgátur um nýjar vélar á borð við hina fyrirhuguðu „Boeing 797“.

Flugfélögin þekkja vel Boeing 767 sem hefur verið í umferð í áratugi og er hundruði Boeing 767 breiðþotna í umferð í dag víðsvegar um heim.

Bechai segir að það sé sniðugur leikur á borði hjá Boeing að framleiða Boeing 767 aftur sem farþegaþotu á meðan verð á þotueldsneyti hefur enn ekki hækkað og myndi það þá einnig brúa bilið áður en Boeing 797 kemur á markaðinn.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga