flugfréttir
Skrokkur af DC-9 festist undir brú í Kólumbíu
Atvikið átti sér stað í gær í úthverfi Bogota í Kólombíu
Undarlegt atvik átti sér stað í Kólombíu í gær er flugvélaskrokkur, sem verið var að flytja með flutningabíl, festist undir brú á hraðbraut í borginni Bogóta.
Skrokkurinn er af gamalli DC-9 þotu sem smíðuð var árið 1966 og var verið að flytja hann
til flugskólans Indoamericana þar sem til stendur að nota hann við þjálfun.
Umferð um hraðbrautina stöðvaðist í meira en hálftíma á meðan unnið var að því að losa
flutningabílinn með skrokkinn undan brúnni.
Búið var að gera ráð fyrir að flutningabílinn myndi fara undir þrjár brýr á leiðinni frá El Dorado flugvellinum til flugskólans og var búið að mæla hæðirnar á þeim en svo virðist sem að útreikningurinn á einni brúnni hafi verið rangur.
DC-9 þotan var eitt sinn í flota flugfélagsins Intercontinental de Aviación sem hætti starfsemi
sinni árið 2005 eftir 40 ára sögu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.