flugfréttir

Sex svifflugum stolið frá flugklúbbi á Jótlandi

2. nóvember 2017

|

Frétt skrifuð kl. 16:20

Talið er að svifflugvélunum hafi verið stolið á tímabilinu frá aðfaranótt þriðjudags til aðfaranótt fimmtudags

Sex svifflugvélum var í vikunni stolið frá svifflugsklúbbi einum á Jótlandi en brotist var inn á Vesthimmerlands-flugvellinum nálægt bænum Aars, skammt suðvestur af Álaborg.

Ekki hefur tekist að hafa hendur í hári þjófanna en talið er að þeir hafi stolið svifflugunum á tímabilinu frá aðfaranótt þriðjudagsins til síðastliðnar nætur.

Samkvæmt lögreglunni á Norður-Jótlandi þá voru svifflugurnar í gámi í flugskýli á vellinum og voru þeir fjarlægðar úr gámnum og ekið á brott.

Tvær svifflugurnar eru af gerðinni LS4, framleiddar af Rolladen-Schneider í Þýskalandi og ein af gerðinni LS6, framleidd af sama fyrirtæki.

Hinar þrjár eru af gerðinni Duo Discus, framleidd af Schempp-Hirth, DG-400 framleidd af Glaser-Dirks og ein af gerðinni Centrair Pegase.

Svifflugvélar á vegum flugklúbbsins

Svifflugtímabilið hjá klúbbnum endaði í lok október og var öllum vélunum komið fyrir í gámi eftir að lokahóf félagsins fór fram síðustu helgi og átti að færa þær í geymslu yfir veturinn.

Dýrasta svifflugan kostaði 13 milljónir króna

Talið er að þjófnaðurinn hafi verið mjög vel skipulagður en þjófarnir höfðu borað göt á hliðið að flugvelli klúbbsins og komist með þeim hætti inn á svæðið.

Tjónið er umtalsvert þar sem svifflugurnar kostuðu frá 2,4 milljónum stykkið sú ódýrasta en dýrasta kostaði 13 milljónir króna.

Talið er að þjófarnir hafi notað vörufluttningabíl þar sem stór hjólför hafa fundist á vettvangi en rannsókn málsins stendur nú yfir.

„Þeir hafa allavega ekki ekið þeim á brott í venjulegum fólksbíl - það er alveg víst“, segir Preben Møller hjá lögreglunni í Himmerland.

Fjórar af þeim sex svifflugum sem stolið var voru í eigu klúbbsins en tvær voru í einkaeigu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga