flugfréttir
Lentu í annarri borg: Farþegum sagt að taka rútuna
- Gátu ekki lent á áfangastað vegna þoku
Airbus A320 þota Pakistan International Airlines (PIA)
Farþegar með flugi Pakistan International Airlines (PIA) voru beðnir um að koma sér sjálfir á leiðarenda með því að taka rútu restina af leiðinni eftir að farþegaþota frá félaginu þurfti að lenda á öðrum flugvelli vegna þoku á áfangastað.
Vélin var á leiðinni frá Dubai til pakistönsku borgarinnar Rahim Yar Khan en vegna þoku á flugvellinum
var ákveðið að lenda þess í stað í Lahore.
Áhöfnin um borð tilkynnti farþegum að vegna slæms skyggnis væri ekki hægt að lenda í Rahim Yar
Khan en vélin lenti í Lahore sem er staðsett um 624 kílómetrum norðaustur af þeim flugvelli
sem til stóð að fljúga til.
Farþegar höfnuðu hinsvegar því boði að taka rútuna til borgarinnar sem hefði tekið þá hátt
í 10 klukkustundir og neituðu þeir að yfirgefa flugvélina.
Farþegarnir höfðu hinsvegar reynt að fá áhöfnina til að fljúga þess í stað til borgarinnar Multan
sem er um 400 kílómetrum nær Rahim Yar Khan en þeirri beiðni var hafnað.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.