flugfréttir
Qatar Airways kaupir tæp 10 prósenta hlut í Cathay Pacific
Qatar Airways mun eignast næstum 10 prósenta hlut í Cathay Pacific eftir að gengið hefur verið frá kaupunum
Qatar Airways mun eignast 9,6 prósenta hlut í Cathay Pacific þar sem að fyrirtækið Kingboard Chemical Holdings mun selja hlut sinn til Qatar Airways fyrir um 70 milljarða króna.
Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóri Qatar Airways segir að með þessum viðskiptum muni
flugfélagið styrkja enn frekar stöðu sína á Asíumarkaðinum.
Samkvæmt fréttaveitunni Bloomberg þá er þetta í fyrsta sinn sem flugfélag
frá Miðausturlöndum fjárfestir í asísku flugfélagi en þegar búið verður að ganga frá kaupunum
verður Qatar Airways þriðji stærsti hluthafi í Cathay Pacific.
„Flugfélög í Miðausturlöndum hafa átt erfitt með að fá aðgang að mörkuðum
eins og Asíu og Hong Kong“, segir markaðssérfræðingur hjá Maybank Investment Bank bankanum sem segir að félagið muni ná yfirburðarstöðu sinni með þessum viðskiptum.
Hlutabréf í Cathay Pacific hafa hækkað um 29% frá áramótum þrátt fyrir að rekstur félagsins
kom út í tapi á þessu ári í fyrsta sinn í 20 ár en eftir að tilkynnt var um viðskiptin í morgun þá féllu þau niður um 4.9 prósent.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.