flugfréttir
Ætla að endurvekja World Airways sem lágfargjaldafélag
McDonnell Douglas MD-11F fraktþota World Airways
Uppi eru áform um að reyna koma flugfélaginu World Airways aftur á loft en félagið varð gjaldþrota og hætti rekstri árið 2014.
Það er flugfélagamógúllinn Ed Wegel sem er einn af forsvarsmönnum þeirra sem ætlar að koma
World Airways aftur á loft en ekki sem fraktflugfélagi því stefnan er að félagið muni
hefja farþegaflug í lágfargjaldarsniði.
Ed Wegel hefur komið að stofnun nokkurra flugfélaga en ekki hafa allar hans áætlanir orðið
að veruleika.
Wegel stofnaði flugfélagið People Express á níunda áratugnum en það félag hóf starfsemi
sína árið 1981 en varð gjaldrþrota árið 1987.
Ed Wegel gerði tilraun til þess að koma Eastern Air Lines aftur í loftið
Wegel stýrði US Airways Express á tíunda áratugnum og þá gerði hann tilraun til að blása nýju
lífi í Eastern Airways fyrir nokkrum árum en það félag náði aldrei að hefja starfsemi sína.
Bandaríska fyrirtækið 777 Partners hefur keypt einkaréttinn á nafninu World Airways og hefur
Wegel verið gerður að framkvæmdarstjóra félagsins og standa yfir viðræður við Boeing um kaup
á allt að tíu Boeing 787 Dreamliner-þotum.
Wegel segir í yfirlýsingu sinni að til standi að hefja farþegaflug frá Bandaríkjunum til Asíu
og til Suður-Ameríku.
Wegel segir að Frank Laker, nýskipaður markasstjóri félagsins, muni svipta hulunni af nýju
nafni félagsins á næstu vikum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.