flugfréttir
Global 7000 einkaþotan komin í fjöldaframleiðslu
- Ætla að ráða allt að 1.000 nýja starfsmenn á næstu 18 mánuðum
Global 7000 einkaþotan mun koma á markað á seinni helmings næsta árs
Bombardier ætlar á næstunni að ráða til starfa fjölda nýrra starfsmanna í tengslum við framleiðslu á Global 7000 einkaþotunni.
Allt að 50 nýir starfsmenn verða ráðnir bæði í Montréal og í Toronto og hafa
þeir fyrstu nú þegar hafið störf en Bombardier er að fara auka framleiðsluhraðann
á Global 7000.
Global 7000 var kynnt til leiks árið 2010 en tveggja ára seinkun hefur orðið
á verkefninu. Global 7000 er stór og hraðfleyg einkaþota sem mun geta náð
hraða sem samsvarar Mach 0.90.
Átta fjöldaframleiðslueintök fyrir viðskiptavini eru nú í samsetningu af Global 7000
einkaþotunni í Toronto en staðan á vélinni er sú að framleiðslustig hefur tekið við af þróunarstigi.
Bombardier segir að allt að 1.000 nýir starfsmenn verði ráðnir til starfa á næstu 18
mánuðum vegna framleiðslunnar.
Stefnt er á að fyrsta eintakið verði afhent á seinni helmings ársins 2018 en afhendingarpláss eru uppseld til ársins 2021.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.