flugfréttir
Rússar smíða nýja útgáfu af einni stærstu sprengjuflugvél heims
- Tupolev Tu-160 „Blackjack“ aftur í fjöldaframleiðslu eftir 25 ára hlé
Fyrsta eintakið af endurgerðri útgáfu af Tupolev Tu-160 sprengjuflugvélinni
Rússar hafa lokið við samsetningu á fyrstu prótótýpunni af Tupolev Tu-160M2 sem er endurgerð útgáfa af Tu-160 sprengjuflugvélinni.
Rússar ákváðu ákváðu árið 2015 að hefja aftur smíði á Tu-160 eftir 10 ára
hlé en Tupolev Tu-160 er ein stærsta, öflugasta og hraðfleygasta sprengjuflugvél heims
og getur hvert eintak borið 12 kjarnorkueldflaugar.
Tupolev Tu-160 kemur með aftursveigða vængi og getur hún náð
tvöföldum hljóðhraða með hámarkshraða upp á 1.200 hnúta sem samsvarar 2.220 kílómetra
hraða á klukkustund en vélin var seinasta sprengjuflugvélin sem framleidd var áður
en Sovíetríkin liðu undir lok.
Fyrsta tilraunaflugið er áætlað á næsta ári
Fyrsta eintakið af Tu-160M2 var dregið út úr lokasamsetningu í verksmiðjunum
í rússnesku borginni Kazan í seinustu viku og er fyrsta flugið áætlað í febrúar
eftir áramót.
Fyrsta Tupolev Tu-160 sprengjuflugvélin kom á markaðinn árið 1987 og voru 33 eintök
smíðuð til ársins 1992 en tvær til viðbótar hafa verið smíðaðar eftir það
og lauk framleiðslu svo endanlega árið 2007.
Nú, 10 árum síðar, er búið að smíða fyrsta eintakið af nýrri kynnslóð af Tu-160 þotunni
og ætla Rússar að hefja fjöldaframleiðslu árið 2023 og er stefnt á að smíða allt að
fimmtíu eintök af flugvélinni.
Tupolev Tu-160 kom fyrst á markaðinn árið 1987
Framleiðslan mun fara fram í Kazan Aviation Factory sem er útibú Tupolev Design
Bureau.
Tupolev Tu-160 fékk viðurnefnið „hvíti svanurinn“ í Rússlandi á níunda
áratugnum á meðan vélin var þekkt hjá NATO undir nafninu „Blackjack“.
Tu-160M2 mun fá nýja hreyfla af gerðinni Kuznetsov NK-32-02 auk þess sem
vélin mun koma með nýjustu tækjum og búnaði í stjórnklefa.
Þá stendur einnig til að uppfæra og endurgera allar þær 16 Tupolev Tu-160 sprengjuflugvélar
sem eru enn í umferð í flota rússneska flughersins.
Tupolev Tu-160 getur flogið allt að 12.000 kílómetra án þess að taka eldsneyti en metið var
sett er eins slík var í 24 klukkustundir á flugi og flaug þá alls 18 þúsund kílómetra.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.