flugfréttir

Flugslys meðal heimasmíðaðra flugvéla nær sögulegu lágmarki

- Mun færri flugslys vestanhafs í heimasmíðuðum flokki flugvéla

21. nóvember 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:28

Experimental Aircraft Association (EAA) hefur unnið hörðum höndum að því að auka öryggi í flugi heimasmíðaðra flugvéla

Flugslysum hefur fækkað verulega vestanhafs þar sem heimasmíðaðar flugvélar eiga í hlut en á fjórum árum hefur slysum fækkað um 47 prósent í þessum flokki.

Á 12 mánaðar tímabili frá 1. október 2016 til 1. október á þessu ári voru 27 banaslys í flugi meðal heimasmíðaðra flugvéla samkvæmt tölfræði frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) en árið 2016 voru þau 33 talsins.

Árið 2014 voru 51 flugslys í þessum flokki þar sem einhver um borð lét lífið í slysinu og 40 slys voru skráð árið 2015 og er því um að ræða 47% færri slys.

„Þetta er í sögulegu lágmarki og má þakka því að flugmenn hafa sameinast um það að einblína á bættara öryggi“, segir Sean Elliot, varaformaður yfir öryggisdeild innan Experimental Aircraft Association (EAA) samtakanna.

Frá árinu 2014 höfðu flugslysum fækkað úr 51 niður í 27 á þessu ári

Elliot bendir á að banaslys í flugi meðal heimasmíðaðra flugvéla eru orðin sjaldgæfari en slys meðal þeirra sem stunda skíðaíþróttir, snjóbretti og jaðaríþróttir.

Meiri líkur á að verða fyrir eldingu

Þá hefur tölfræðin verin borin saman við önnur atvik og er búið að sýna fram á að það séu meiri líkur að láta lífið við að verða fyrir eldingu en í flugslysi í heimasmíðaðri flugvél.

EAA hefur að undanförnu unnið í nánu samstarfi við FAA og samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) með það að leiðarljósi að fækka flugslysum í þessum flokki.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga