flugfréttir
Franskir flugmenn boða til verkfalls um jólin
Canadair-þota HOP!
Stéttarfélag franskra atvinnuflugmanna hafa kosið með verkfallsaðgerðum sem fyrirhugaðar eru yfir jólin í Frakklandi.
Ef af verkfallinu verður mun það hafa áhrif á öll frönsku flugfélögin og ferðaáætlanir
þeirra farþega sem hafa bókað flug með félögum á borð við Air France, HOP!, Transavia,
Corsair, XL Airways, Aigle Azur, Air Caraibes og La Compagnie.
Ekki er búið að gefa út hvenær verkfallið mun hefjast né hversu lengi það mun standa yfir
en talið er að það muni standa yfir þegar styttist í hátíðirnar.
Ástæða verkfallsins er vegna deilna varðandi fyrirhuguð áform stjórnar HOP!, dótturfélags Air France, er verðar launakjör og vinnutíma.
HOP! var stofnað árið 2012 og varð félagið til við samruna Airlinair, Brit Air og Régional
en stjórn félagsins samdi við verkalýðsfélög um kjör fyrir flugmenn sem þeir hafa ekki
verið sáttir við og hafa samningar við þá verið í lausu lofti.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.