flugfréttir
Sæti flugstjórans losnaði og rann aftur á bak í flugtaki
Atvikið átti sér stað sl. helgi á Kotaka-flugvellinum í Accra í Ghana
Talið er að orsök þess að farþegaflugvél af gerðinni ATR 72-500 fór út af flugbraut í Kotoka-flugvellinum í Ghana sl. helgi megi rekja til þess að sæti flugstjórans rann til í flugtakinu.
Rannsókn meðal flugslysanefndarinnar í Ghana, sem gerð hefur verið í samstarfi
við frönsku flugslysanefndina, hefur leitt í ljós að vélin var komin á 70 hnúta hraða
í flugtakinu þegar sæti flugstjórans rann aftur á bak er hann stýrði vélinni á brautinni en sætið hafði ekki náð að festast í rétta stöðu.
Flugstjórinn var við stjórnvölin og hélt hann vélinni beinni á miðlínu með nefhjólastýringu
þegar sætið rann skyndilega aftur á bak og til vinstri.
„Flugstjórinn náði ekki stjórn á vélinni aftur þar til hún var komin út af brautinni og staðnæmdist
við grindverk flugvallarins en á meðan hafði flugmaður vélarinnar dregið allt afl af hreyflunum“, segir
í skýrslu frá frönsku flugslysanefndinni.
Fimm manns slösuðust í atvikinu og þá urðu töluverðar skemmdir á vélinni og þar á meðal
á vinstri mótor vélarinnar auk þess sem skrúfublöðin skemmdust.
Vélin hafði aðeins verið í notkun í þrjá daga hjá Starbow Airlines sem hafði fengið vélina afhenta
frá dönsku flugvélaleigunni Nordic Aviation Capital.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.