flugfréttir

Líftími hreyflablaða í Boeing 787 styttri en talið var

- Flugfélög framkvæma skoðun á Trent 1000 í kjölfar tveggja atvika

11. desember 2017

|

Frétt skrifuð kl. 08:07

Trent 1000 hreyfill frá Rolls-Royce frá Air New Zealand

Nokkur flugfélög í heiminum, sem hafa Dreamliner-þoturnar í flota sínum sem koma með Trent 1000 hreyflum frá Rolls-Royce, standa frammi fyrir mögulegum seinkunum á flugi yfir jólin og áramót vegna vandamála með hreyflablöðin í mótornum.

Svo virðist sem að endingartími hreyflablaðanna sé mun styttri en gert var ráð fyrir en tvö atvik áttu sér stað nýlega í sitthvorri Boeing 787-9 þotunni hjá Air New Zealand þar sem vandamál kom upp með hreyfla vélanna.

Í öðru tilfellinu, sem átti sér stað sl. þriðjudag, var um að ræða Boeing 787-9 þotu hjá flugfélaginu nýsjálenska sem var á leið frá Auckland til Tókýó þegar flugmenn tilkynntu um gangtruflanir í hreyfli skömmu eftir flugtak en í ljós kom að öll hreyflablöðin á öðrum hreyflinum voru farin að eyðast upp og trosna.

Hreyflablöðin á annarri Boeing 787-9 þotu Air New Zealand sem
þurfti að snúa við eftir flugtak

Degi síðar kom annað sambærilegt atvik upp í annarri Boeing 787-9 þotu hjá Air New Zealand sem var á leið til Buenos Aires og þurfti sú vél einnig að snúa við til Auckland skömmu eftir flugtak.

Báðar Dreamliner-þoturnar hjá Air New Zealand hafa verið teknar úr umferð en atvikin hafa einnig haft áhrif á önnur félög þar sem British Airways hefur kyrrsett nokkrar Boeing 787 þotur til að skoða hreyflana á sínum þotum og það sama má segja hjá Virgin Atlantic sem einnig hefur lagt nokkrum Dreamliner-þotum frá því í seinustu viku.

Hreyflaframleiðandinn Rolls-Royce hafði í haust lýst því yfir að nokkrir íhlutir í Trent 1000 hreyflinum væru ekki með þann endingartíma sem gert var ráð fyrir þegar hreyfillinn var hannaður þar sem komið hefur í ljós að þeir eyðast mun fyrr en talið var.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga