flugfréttir
Lufthansa fær ekki að kaupa Niki
- Evrópusambandið segir að yfirtaka stangist á við samkeppnislög
Lufthansa ætlaði að taka yfir Niki og sameina við rekstur Eurowings
Lufthansa hefur hætt við áform sín um að taka yfir rekstur flugfélagsins Niki eftir að Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins hafnaði viðskiptunum á grundvelli samkeppnislaga.
Niki var dótturfélag Air Berlin sem varð gjaldþrota í haust en Lufthansa hafði tilkynnt að félagið
hefði einnig áhuga á að taka yfir rekstur og sameina félagið við rekstur Eurowings.
„Evrópusambandið hefur gefið það skýrt í skyn að yfirtaka og samruni á Niki og Eurowings
stangist á við samkeppnislög. Vegna þessa þá mun félagið ekki aðhafast frekar í kaupum á Niki“, segir
í tilkynningu frá Lufthansa sem félagið gaf út í dag.
Lufthansa ætlar sér samt sem áður að gera tilraun til að kaupa þýska flugfélagið Luftfahrtgesellschaft Walter (LGW) sem var eitt af dótturflugfélögum Air Berlin sem átti þær Bombardier Dash 8 Q400 flugvélar sem voru í flota félagsins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.