flugfréttir
Blackbird Air í Danmörku stefnir á einkaþotuflug til Ameríku
Önnur einkaþotan í flota Blackbird Air
Danska leiguflugfélagið Blackbird Air ætlar sér að hefja reglubundið flug til Bandaríkjanna með einkaþotum.
Blackbird Air hefur sótt um staðlað leyfi fyrir leiguflug milli Evrópu og Ameríku
og verður flogið frá nokkrum löndum í Evrópu til Bandaríkjanna innan
sáttmála sem nefnist EU-US Open-Skies.
Félagið sækir um leyfi í flokki smærri flugvéla en ekki gilda eins strangar reglugerðir
um slíkt flug þegar kemur að leyfisveitingu samanborið við þau leyfi sem stór
flugfélög sækja um þegar kemur að farþegaflugi.
Félagið hefur tvær einkaþotur í flota sínum; eina af gerðinni Falcon 7X og
eina Falcon 2000S.
Blackbird Air hefur höfuðstöðvar sínar í Billund á Jótlandi og var félagið stofnað
í janúar árið 2015.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.