flugfréttir
Önnur Boeing 757-300 þota á leið í flota Icelandair
- Kemur úr flugflota Arkia Israel Airlines
TF-FIX „Hengill“, Boeing 757-300 þota Icelandair
Icelandair mun á næstunni taka í notkun aðra Boeing 757-300 þotu en félagið hefur í 15 ár aðeins haft eina þotu af þeirri gerð í flotanum.
Icelandair er við það að ganga frá kaupum á vélinni sem kemur úr flota ísraelska flugfélagsins Arkia Israel Airlines sem hefur haft tvær Boeing 757-300 þotur í flotanum.
Samkvæmt heimildum mun Boeing 757-300 þotan að öllum líkindum fá fá skráninguna TF-ISX og er vélin væntanleg til landsins í febrúar eftir áramót.
Vélin mun hún gangast undir breytingarferli í tvo mánuði þar sem innréttingum og farþegarými verður komið fyrir í samræmi við aðrar vélar Icelandair og hefja áætlunarflug með vorinu.
Flugflotinn í leiðarkerfi Icelandair samanstendur af 30 þotum en 26 af þeim eru af gerðinni
Boeing 757.
Allar eru þær af gerðinni Boeing 757-200 en ein þeirra er af lengri gerðinni, Boeing 757-300, sem
tekur 222 farþega á meðan Boeing 757-200 vélarnar taka 183 farþega.
Aðeins 55 eintök til af Boeing 757-300 og allar í notkun
Boeing 757-300 hefur verið vel notuð af þeim flugfélögum sem hafa hana í flotanum og hefur
hún ekki legið á lausu á markaðnum.
Aðeins voru 55 eintök framleidd af Boeing 757-300 þotunni sem kom á markað árið 1999
en sú Boeing 757-300 þota sem Icelandair hefur haft í sínum flota er TF-FIX sem nefnist „Hengill“.
Boeing 757-300 þotan sem mun bætast við í flotann mun koma í stað annarrar þotu sem fer úr flotanum sem er af gerðinni Boeing 757-200.
Icelandair fékk TF-FIX afhenta þann 18. mars árið 2002 og kom hún til landsins daginn eftir, 19. mars.
Fyrir utan Icelandair eru aðeins fimm flugfélag sem hafa Boeing 757-300 í flotanum en þau er Arkia, Thomas Cook, Delta Air Lines, Condor og United Airlines.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.