flugfréttir
Emirates mun fljúga á Stansted-flugvöllinn í London
Frá flugvellinum í Dubai
Emirates hefur bætt Stansted-flugvellinum við í leiðarkerfi sitt en félagið ætlar sér að hefja áætlunarflug frá Dubai til London Stansted í farþegaflugi á næsta ári.
Með því mun Emirates koma til með að fljúga á þrjá flugvelli í London en félagið flýgur
nú þegar á Heathrow-flugvöll og einnig á Gatwick-flugvöll.
Emirates mun byrja að fljúga til London Stansted þann 8. júní árið 2018 og verður flogið
daglega með Boeing 777-300ER þotum.
Stjórn Stansted-flugvallarins hefur reynt mikið að laða til sín fleiri flugfélög en 25 flugfélög
fljúga í dag um Stansted auk 18 fraktflugfélaga.
Ken O’Toole, framkvæmdarstjóri Stansted-flugvallarins, segir að flugvöllurinn hafi nægt pláss á meðan aðrir flugvellir í
London séu óðum að fyllast og geta varla bætt við sig meiri flugumferð.
Ástæða þess að Emirates ákvað að hefja flug á London Stansted er meðal annars sú að mörg
tækni- og lyfjafyrirtæki eru nálægt Cambridge og Petersborough í austurhluta Englands
auk fyrirtækja á borð við GlaxoSmithKline og Airbus, sem hefur starfsstöð nálægt Stevenage.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.