flugfréttir
China Southern hættir með Boeing 757
Boeing 757-200 þota China Southern Airlines
China Southern Airlines mun í dag fljúga síðasta flugið með Boeing 757 en flugfélagið kínverska hefur haft Boeing 757 í flota sínum í 26 ár eða frá árinu 1991.
China Southern Airlines mun selja Boeing 757-200 þoturnar aftur til Boeing sem mun taka
við þeim þrettán þotum sem félagið hefur haft í leiðarkerfi sínu.
Síðasta flug félagsins með vélunum verður flogið í dag frá Islamabad í Pakistan til kínversku
borgarinnar Urumqi.
Xiamen Airlines er núna síðasta flugfélagið í Kína til að hafa Boeing 757 í farþegaflugi
en China Postal Airlines hefur fjórar Boeing 757-200F í fraktflugi.
Í dag eru 689 Boeing 757 þotur í notkun í heiminum eða 65% af öllum þeim Boeing 757 þotum
sem framleiddar voru.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.