flugfréttir

JAL féll fyrir svindlpósti: Greiddu reikninga upp á 358 milljónir

- Töldu sig vera að greiða leigu af Boeing 777-300ER

24. desember 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:10

Japan Airlines hefur tapað 358 milljónum króna á því að falla fyrir tölvuþrjótum sem þóttust vera fyrirtæki að innheimta greiðslu vegna leigu á Boeing 777-300ER

Bíræfnir tölvuþrjótar náðu að hafa 358 milljónir króna af Japan Airlines eftir að félagið greiddi óvart falsaða reikninga sem svikararnir sendu til flugfélagsins japanska.

Svikahrapparnir sendu fjármáladeild Japan Airlines reikning í tölvupósti fyrir leigugjaldi á einni Boeing 777-300ER farþegaþotu sem félagið tók á leigu tímabundið.

Þrjótarnir komust yfir upplýsingar yfir leigusamninginn og þotuna sem átti í hlut og sendu þeir Japan Airlines reikning með bankaupplýsingar og þeir beðnir að leggja inn á bankareikning í Hong Kong.

Japan Airlines taldi reikninginn vera góðan og gildan og var hann greiddur þann 29. nóvember síðastliðinn en upphæðin var 336 milljónir króna.

Þá hafði annað fyrirtæki, sem Japan Airlines hafði ráðið til sín til að sinna starfsemi er varðar fraktflug, einnig fengið svipaða reikninga í ágúst og í september og greiddi það fyrirtæki 22 milljónir króna fyrir hönd Japan Airlines.

Japan Airlines komst síðar að því hvernig var í pottinn búið er félagið var beðið um að staðfesta sendanda og netfangið sem merkt var sem mögulegur ruslpóstur.

Japan Airlines hefur gert tilraun til að rekja millifærsluna til Hong Kong og er japanska lögreglan og bandaríska alríkislögreglan (FBI) komin í málið en flugfélagið hefur með þessu millfært alls 358 milljónir inn á reikning hjá tölvuþrjótunum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga