flugfréttir
Risaþotan of stór fyrir Korean Air
- Hætta með eina Airbus A380 og setja hana á sölu
Airbus A380 risaþota Korean Air
Svo virðist sem að Airbus A380 risaþotan sé of stór fyrir Korean Air sem hefur tekið fyrstu risaþotuna úr umferð og komið henni fyrir í geymslu.
Stjórn flugfélagsins kóreska ákvað að taka eina risaþotu úr umferð sem hefur verið sett á sölu
en á meðan verið er að reyna að finna nýjan eiganda að vélinni hefur hún verið ferjuð
í flugvélakirkjugarðinn í Roswell í Nýju-Mexíkó.
Risaþotan var notuð á nokkrum flugleiðum sem voru ekki að skila inn hagnaði sökum þess hversu stór
Airbus A380 risaþotan er en sætanýtingin hafði ekki náð 50 prósentum á þessum flugleiðum.
Af öllum þeim Airbus A380 risaþotum sem eru í notkun í heiminum þá eru risaþotur Korean Air
með minnsta sætafjöldann um borð en A380 vélar félagsins taka rétt rúmlega 400 farþega eða tæplega 200
færri farþega en risaþotur Emirates sem koma með tveimur farrýmum.
Þess má geta að Boeing 777-300ER þotur Air Canada taka 450 farþega og hafa því fimmtíu fleiri
sæti en risaþotur Korean Air.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.