flugfréttir
Móðurfélag BA eignast Niki fyrir 2.4 milljarða
Niki var hluti af Air Berlin sem varð gjaldþrota í haust
IAG (International Airlines Group), móðurfélag British Airways og Iberia, mun eignast austurríska flugfélagið Niki.
Kaupverðið nemur 20 milljónum evra sem samsvarar 2,4 milljörðum króna
og munu kaupin fara í gegnum nýstofnað systurfélag spænska lágfargjaldafélagsins
Vueling en beðið er eftir samþykki frá Evrópusambandinu sem þarf að gefa grænt
ljós fyrir kaupunum.
Hið nýstofnaða systurfélag Vueling mun sjá um rekstur Niki aðskilið frá
spænska lágfargjaldafélaginu fyrst um sinn en fljótlega er von á yfirlýsingu
um nafn á nýja flugfélaginu.
Þá stendur til að ráða um 740 starfsmenn frá Niki yfir til nýja félagsins en flugfélagið
austurríska hætti rekstri þann 14. desember eftir að Lufthansa hætti við áform
sín um yfirtöku.
Eigur Niki telja meðal annars fimtán Airbus A320 þotur auk lendingarleyfa á nokkrum evrópskum flugvöllum og þar á meðal í Vín, Dusseldorf, Munchen, Palma
og Zurich.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.