flugfréttir

Brúðkaup um borð á leið í flugvélakirkjugarðinn

- Söknuður og gleði í síðasta Boeing 747 fluginu í Ameríku

4. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 20:28

Margir starfsmenn Delta Air Lines sjá á eftir júmbó-þotunni sem flaug sérstakt kveðjuflug sl. þriðjudag

Síðasta júmbó-þotan í bandarísku farþegaflugi flaug sitt allra síðasta flug þann 2. janúar sl. til flugvélakirkjugarðsins Pinal Airpark í Arizona.

48 farþegar voru um borð í þessari sögulegu flugferð sem markar endalokin að júmbóþotuflugi í Bandaríkjunum eftir 48 ára flugsögu.

Flug DL9771 var síðasta flugið og var það flogið frá Atlanta til Pinal Airpark flugvallarins í Arizona en um borð voru 48 farþegar sem flestir eru starfsmenn og yfirmenn Delta Air Lines.

Delta flaug síðasta farþegaflugið í áætlunarflugi með júmbó-þotunni þann 19. desember sl. sem var flogið frá Seoul til Detroit en síðan þá er ekki lengur hægt að bóka flug hjá bandarísku flugfélagið með Boeing 747.

Flug DL9771 lendir í Pinal Airpark eftir síðasta flugið frá Atlanta

Delta Air Lines notaði seinustu júmbó-þotuna eftir það í nokkur sérstök leiguflug í lok desember þar sem íþróttaliðum var flogið á leik en annan daginn á nýju ári var komið að endalokunum.

Á meðan á fluginu stóð til Arizona þá notuðu farþegar tækifærið og vottuðu júmbó-þotunni virðingu sína með því að skrifa kveðjuorð með tússpenna innan á veggjaklæðningar vélarinnar í farþegarýminu auk þess sem áhöfnin skrifaði nöfn sín utan á vélina.

Tíminn var nýttur vel í hinu fjögurra tíma flugi frá Atlanta þar sem ein hjón, sem voru um borð og starfa bæði hjá Delta sem flugfreyja og flugstjóri, gengu í það heilaga og orðtakið „walking down the aisle“ fékk nýja merkingu en þau kynntust um borð í júmbó-þotunni fyrir níu árum síðan.

Flugfreyjan Holly Pick og flugstjórinn Gene Peterson giftu sig um borð í fluginu

Þá voru margir um borð sem tengjast júmbó-þotunni sterkum böndum og þar á meðal flugfreyjan Nancy Cobb sem hefur starfað um borð í Boeing 747 frá því hún hóf störf hjá Northwest Airlines árið 1985.

„Ég hef eytt allri ævinni um borð í þessum þotum“, segir Nancy sem kveður júmbó-þotuna með söknuði og segir það ekki auðvelt að verða vitni að endalokum Boeing 747 en fagnar samt sem áður komu Airbus A350 sem tekur við keflinu af drottningu háloftanna hjá Delta Air Lines.

„Að fljúga Boeing 747 er besta starf sem flugmaður getur fengið í heiminum í fluginu. Að mati flugmanna þá er engin flugvél sem getur komist með tærnar þar sem hún hafði hælana“, segir Stephen Hanlon flugstjóri sem hefur flogið júmbó-þotunni í 18 ár.

Fleiri myndir:













































  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga