flugfréttir

Airbus leitar eftir samstarf við Kínverja til að bjarga risaþotunni

8. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 14:23

Airbus hefur ekki fengið nýja pöntun frá Emirates í risaþotuna Airbus A380 eins og vonast var til

Airbus leitar nú eftir samstarfi við Kínverja í þeim tilgangi að halda framleiðslu risaþotunnar Airbus A380 gangandi áfram með því skilyrði að kínversk stjórnvöld leggja inn pöntun í risaþotuna.

Emmanuel Macron, forseti Frakklands, er nú í þriggja daga heimsókn í Peking en megintilgangur heimsóknarinnar er að efla viðskiptatengsl milli Kínverja og Frakka.

Með forsetanum í för eru 50 yfirmenn stærstu fyrirtækja Frakklands og þar á meðal Fabrice Brégier, rekstarstjóri Airbus, sem mun yfirgefa stjórnarstólinn innan Airbus í vor.

Brégier ætlar að freista þess að bjóða kínverskum stjórnvöldum upp á framleiðslusamstarf er kemur að smíði risaþotunnar A380 ef ríkisstjórn landsins er tilbúin að leggja inn pöntun í risaþotuna fyrir hönd kínverskra flugfélaga.

Airbus er nú á þeim tímamótum að nauðsynlegt er að fá inn fleiri pantanir í Airbus A380 til að réttlæta áframhaldandi framleiðslu á risaþotunni en að öðru leyti hefur framleiðandinn lýst því yfir að án nýrrar pöntunar verði farið út í að leggja drög að endalokum á smíði A380.

Eric Chen, forstjóri Airbus í Kína, lýst því yfir í fyrra að þörf væri fyrir 60 til 100 risaþotur á borð við Airbus A380 meðal kínverskra flugfélaga á næstu fimm árum en aðeins hafa fimm risaþotur verið seldar til Kína sem eru í flota China Southern Airlines.

Bæði Boeing og Airbus hafa unnið að því að auka umsvif sín í Kína þar sem talið er að eftirspurn eftir nýjum farþegaþotum á eftir að fara fram úr eftirspurninni í vestrænum löndum næsta áratuginn.

Hinsvegar hafa kínversk stjórnvöld unnið að því að efla og styrkja stöðu sína í sinni eigin flugvélaframleiðslu með C919 þotunni frá COMAC.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga