flugfréttir
Myndband: Starfsfólk notar pappaspjöld til að kæla bremsur
Skjáskot af myndband á Twitter
Undarlegir starfshættir meðal flugvallarstarfsfólks á ónefndum flugvelli í Asíu hefur vakið athygli þar sem nokkrir starfsmenn flugvallarins reyndu að kæla bremsur á hjólastelli á Airbus A320 þotu með því að blaka pappaspjöldum af pappakassa.
Myndband náðist af atvikinu en þotan, sem er frá lágfargjaldafélaginu AirAsia, var nýlent á flugvelli
sem hefur tiltölulega stutta flugbraut að sögn heimilda.
Flugstjóri, sem flýgur Airbus A320 þotum, segir í ummæli sínu að ljóst er að bremsurnar hafi klárlega verið
mjög heitar eftir lendinguna og sé rétta aðferðin sú að setja klossa utan um hjólin
og bíða með flugtakið þar til bremsurnar hafi náð að kólna.
Í öðru ummæli er flugvellinum bent á að fjárfesta í sérstökum búnaði sem notaður er til að kæla niður heitt bremsukerfi.
„Að blaka pappaspjöldum eins og blævængjum er fyrir mér mjög undarleg aðferð“, bætir flugmaðurinn við.
Myndband:
When you wish you had purchased a plane with brake cooling system #airasia pic.twitter.com/kyGXKfpLEA
— JanRiskManagementPro (@srhmmj) December 27, 2017
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.