flugfréttir

Kansas City nýr áfangastaður Icelandair

- Fyrsta flugið verður flogið þann 25. maí í vor

9. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 17:45

Fyrst flug Icelandair til Kansas City verður flogið þann 25. maí í vor

Icelandair hefur ákveðið að hefja flug til bandarísku borgarinnar Kansas City í Missouri í maí í vor.

Borgin er 21. áfangastaðurinn í Norður-Ameríku sem Icelandair býður upp á í leiðakerfi sínu en flogið verður þrisvar í viku frá 25. maí til septemberloka og er sala farseðla þegar hafin.

„Kansas City flugvöllur er sá stærsti í Bandaríkjunum þar sem ekkert beint flug til Evrópu er í boði. Með nágrannaborgum er íbúafjöldi svæðisins um 5 milljónir og Icelandair því að opna stóran spennandi markað fyrir íslenska ferðaþjónustu og styrkja tengiflug félagsins til og frá Evrópu“, segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair.

Kansas City er staðsett í miðjum Bandaríkjunum á mörkum fylkjanna Kansas og Missouri á sléttunum miklu. Saga borgarinnar tengist gjarnan villta vestrinu og amerískri menningu. Hún var heimabær útlagans Jessie James, þar teiknaði Walt Disney fyrst Mikka mús á námsárum sínum og Count Basie kynnti „swing“ tónlist fyrst á fjölmörgum jassklúbbum borgarinnar.

Séð yfir Kansas City sem staðsett er bæði í Missouri og í Kansas

Í dag er borgin um margt dæmigerð amerísk stórborg sem býður upp á fjölbreytt menningar- og viðskiptalíf, vetingastaði og aðra afþreyingu.

Flugáætlun Icelandair í ár verður sú umfangsmesta í sögu félagsins en Kansas City er fjórði nýi áfangastaðurinn í flugáætlun Icelandair á árinu 2018 en áður hefur verið tilkynnt um að flug hefjist til Cleveland og Dallas í Bandaríkjunum og Dublin á Írlandi, auk Berlínar sem bættist við leiðakerfið sl. nóvember.

Nú í vor mun Icelandair taka í notkun þrjár nýjar 160 sæta Boeing 737 MAX 8 flugvélar og verða alls 33 flugvélar nýttar til farþegaflugsins í sumar, 26 af Boeing 757 gerð og fjórar af Boeing 767-300 gerð auk nýju vélanna.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga