flugfréttir
Óvissa með yfirtöku IAG á flugfélaginu Niki
Airbus A320 þota Niki
Óvissa hefur komið upp varðandi fyrirhugaða yfirtöku IAG, móðurfélags British Airways, á austurríska flugfélaginu í kjölfar úrskurðs í dag.
Farið hefur verið fram á að dómstólar í Austurríki skuli taka ákvörðun um hvort leyfi verði gefið fyrir yfirtökunni
í stað dómstóla í Berlín þar sem flugfélagið er austurrískt að uppruna en Niki var hluti af Air Berlín sem var
þýskt flugfélag.
Þessi úrskurður var gerður í dag í kjölfar kvörtunar frá fyrirtækinu FairPlane sem berst fyrir réttindum
flugfarþega en fyrirtækið hefur höfðað mál gegn gjaldþrotanefnd Air Berlin þar sem fram kemur að brotið
hafi verið á réttindum þeirra farþega sem áttu bókað með Niki.
Niki ákvað að hætta starfsemi sinni þann 14. desember eftir að Lufthansa ákvað að hætta við yfirtökuáform sín
vegna óvissu með hvort Evrópusambandið myndi gefa leyfi fyrir yfirtökunni vegna samkeppnislaga.
Fram kemur að þrátt fyrir að flestar tekjur Niki hafi farið í gegnum Þýskaland þá hafi stjórnun félagsins
og fjármál þess farið fram í höfuðstöðvum félagsins í Vínarborg og þar að auki hafði félagið
austurrískt flugrekstarleyfi.
Þar að auki hafi flest starfsfólk Niki verið staðsett í Austurríki og þótt að félagið var hluti af Air Berlin þá
sé ekki þar með sagt að hægt sé að dæma um yfirtökuna af þýskum dómstólum í Berlín.
IAG (International Airlines Group) er staðráðið í að halda áformum sínum áfram í að vinna að því að
innsigla yfirtökuna í samstarfi við þá aðila sem koma að máli.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.