flugfréttir

Icelandair mun hefja flug á ný til Baltimore

10. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 16:40

Icelandair hætti flugi til Baltimore árið 2008

Icelandair hefur ákveðið að hefja aftur áætlunarflug til Baltimore í Maryland en borgin verður 22. áfangastaður félagsins í Norður-Ameríku.

Baltimore var í leiðarkerfi Icelandair um árabil en hlé var gert á flugi þangað í ársbyrjun 2008.

Fyrsta flugið til Baltimore verður flogið þann 28. maí og verður flogið fjórum sinnum í viku fram í október í haus en þess má geta að sala á farmiðum er þegar hafin.

„Með fluginu til Baltimore (BWI flugvöll)  erum við að auka framboð okkar inn á hið fjölmenna Washington/Baltimore svæði, en við fljúgum nú þegar á Dulles flugvöllinn í Washington“, segir Björgólfur Jóhannson, forstjóri Icelandair.

Frá Baltimore

„Um 70 kílómetrar eru á milli flugvallanna. Þetta er fjórða stórborgarsvæðið sem Icelandair þjónar með flugi á tvo flugvelli. Nú þegar er boðið upp á flug til JFK og Newark flugvallanna í New York, til Heathrow og Gatwick í London og til Charles De Gaulle og Orly flugvallanna í París“, segir Björgólfur.  

„Við leggjum nú áherslu á fjölgun áfangastaða í leiðakerfi Icelandair og til viðbótar við Berlín, Dublin, Cleveland og Dallas, sem þegar hafa verið kynntar til leiks, bætum við tveimur nýjum áfangastöðum vestan hafs við í sumar; Baltimore og Kansas City, sem kynnt var til sögunnar í gær. Þá eru áfangastaðirnir orðnir 22 vestan hafs en voru 18 í fyrra og Icelandair orðið meðal þeirra evrópsku flugfélaga sem fljúga til flestra áfangastaða í Norður-Ameríku,“ segir Björgólfur Jóhannsson.    

Nú í vor mun Icelandair taka í notkun þrjár nýjar 160 sæta Boeing 737 MAX 8 flugvélar og verða alls 33 flugvélar nýttar til farþegaflugsins í sumar, 26 af Boeing 757 gerð og fjórar af Boeing 767-300 gerð auk nýju vélanna.  







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga