flugfréttir
Kínverjar panta 184 þotur frá Airbus
Airbus A320 þota í framleiðslu í verksmiðjum Airbus í Kína
Kínverjar munu á næstunni ganga frá pöntun í 184 farþegaþotur frá Airbus í kjölfar opinberrar heimsóknar Emmanuel Macron, Frakklandsforseta, til Kína þar sem hann átti fund með Xi Jinping, forseta Kína.
Megintilgangur heimsóknarinnar var að efla efnahags- og viðskiptatengsl milli
Kínverja og Frakka.
Pöntunin í flugvélarnar 180 samanstendur að mestu af þotum af gerðinni
Airbus A320neo og munu þær fara í flota þrettán kínverskra flugfélaga
og verða þær afhentar frá árinu 2019 til 2020.
Ekki er ljóst hvort um nýja pöntun sé að ræða eða hvort pöntunin er hluti af annarri
pöntun sem barst áður til Airbus undir nafnleynd.
Þá kemur fram að bæði frönsk og kínversk stjórnvöld séu sammála um skoða
þurfi samstarf er kemur að framleiðslu á Airbus A330, A350 og risaþotunni Airbus A380.
„Kínverjar eru tilbúnir í að halda áfram að panta Airbus-þotur til að koma
til móts við aukinni eftirspurn eftir þotum í Kína“, kemur fram í yfirlýsingu.
Þess má geta að fjórar Airbus 320 þotur eru framleiddar í hverjum mánuði
í verksmiðjum Airbus í Tianjin í Kína en til stendur að auka framleiðsluna
upp í sex þotur á mánuði fyrir árið 2020.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.