flugfréttir
Bombardier Q400 endaði á nefinu í lendingu í Varsjá
Ekki hefur enn komið í ljós hvort að nefhjólið hafi ekki farið niður eða hvort það gaf sig við lendingu
Engan sakaði er nefhjól á farþegaflugvél af gerðinni Bombardier Dash-8 Q400 gaf sig í lendingu á flugvellinum í Varsjá í Póllandi í kvöld.
Vélin, sem er frá pólska flugfélaginu LOT Polish Airlines, var á leiðinni
frá Krakow til Varsjár en flugmenn vélarinnar fengu viðvörun skömmu eftir
flugtak um vandamál í nefhjólabúnaði vélarinnar.
Flugmennirnir stöðvuðu klifrið í 10.000 fetum og snéru við til Krakow en hættu
við það skömmu síðar og ákváðu þess í stað að halda áfram til Varsjá.
Mögulegt er að nefhjólið hafi ekki farið niður fyrir lendingu en ekkert vitað
hvort svo sé eða hvort að nefhjólið hafi gefið sig þegar það snerti brautina.
Flugbrautinni var lokað í fjórar klukkustundir vegna atviksins sem átti sér
stað klukkan 17:16 í dag að íslenskum tíma.
Um borð í vélinni voru 59 farþegar og fjögurra manna áhöfn og eins og áður
kom fram urðu engin slys á fólki.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.