flugfréttir

Boeing afhenti 763 flugvélar árið 2017

- Eiga eftir að smíða yfir 5.800 þotur til næstu 17 ára

11. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 11:22

Frá verksmiðju Boeing í Everett í Bandaríkjunum

Boeing sló sitt eigið met árið 2017 er framleiðandinn afhenti alls 763 þotur á árinu sem fellur nákvæmlega inn í afhendingaráætlun sem gerð var við upphaf ársins sem hljómaði upp á 760 til 765 afhendingar.

Þessu má meðal annars þakka auknum framleiðsluhraða á Boeing 737 en 47 eintök af þeim þotum eru framleidd núna á mánuði.

Þá fékk Boeing pantanir í 912 þotur árið 2017 að andvirði 14 þúsund milljarða króna en pantanirnar komu frá 71 viðskiptavini.

Boeing hefur í dag 5.864 ósmíðaðar flugvélar sem bíða þess að fara í samsetningu á næstu árum og mun það taka um 17 ár að framleiða þær vélar.

Af þeim 763 þotum sem afhentar voru árið 2017 voru 529 af þeim Boeing 737 þotur og þar af 74 Boeing 737 MAX þotur.

Verksmiðjur Boeing í Renton þar sem Boeing 737 er framleidd

Þá voru afhentar um fjörutíu Boeing 777 þotur sem stenst afhendingaráætlun sem miðast af því að skipta yfir í framleiðslu á arftakanum, Boeing 777X, en afhendingar á þeim hefst árið 2020.

Sú flugvélategund sem virðist ekki eiga eins mikla framtíð fyrir sér er Boeing 747-8, arftaki júmbó-þotunnar, en einungis á eftir að smíða 12 eintök af henni sem mun taka tvö ár.

Randy Tinseth, markaðsstjóri Boeing, er samt bjartsýnn á að fleiri pantanir eigi eftir að koma í fraktútgáfuna af Boeing 747-8 þar sem mörg fraktflugfélög, sem í dag hafa Boeing 747F, eiga eftir að endurnýja flota sinn.

„Það er áhugi fyrir Boeing 747-8F en spurningin er hinsvegar hvenær þau verða tilbúin að leggja inn pöntun í vélina“, segir Randy.

„Aukin samkeppni og viðskipti, ódýrari fargjöld og heilbrigðari efnahagur gerir það að verkum að flugvélar fljúga núna með mun betri sætanýtingu og flugfélögin fljúga fleiri flugferðir en þau hafa nokkurn tímann gert“ segir Randy.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga