flugfréttir
Óafhentar þotur til Kína hrannast upp hjá Airbus
- Bíða þess að fá grænt ljós frá flugmálayfirvöldum í Kína
Airbus A320neo þota fyrir kínverska flugfélagið West Air á athafnasvæði Airbus í Hamborg
Nýjar farþegaþotur frá Airbus, sem stendur til að afhenda til Kína, hafa hrannast upp á athafnarsvæði við verksmiðjur Airbus, bæði í Toulouse í Frakkalandi og í Hamborg í Þýskalandi.
Töf hefur orðið á afhendingum þar sem kínversk stjórnvöld hafa ekki enn gefið grænt ljós fyrir afhendingum á nokkrum af nýjustu
flugvélategundunum frá Airbus og stoppar því allt á skrifræði og pappírsvinnu.
Samt sem áður eru nokkrir dagar síðan að stjórnvöld í Kína gerðu samning um kaup á 200 þotum sem munu fara í flota
kínverskra flugfélaga.
Meðal flugvéla sem bíða þess að vera afhentar til Kína eru á annan tug véla af gerðinni Airbus A320neo og A321neo
og sex Airbus A350 þotur sem allar hafa verið í geymslu allt frá því seinasta vor árið 2017.
Mjög mikilvægt er bæði fyrir Boeing og Airbus að fá vottun frá flugmálayfirvöldum í Kína í tæka tíð þar sem stór hluti þeirra
pantana, sem gerðar hafa verið í nýjar flugvélar, koma frá kínverskum flugfélögum.
Að sögn þeirra sem eru kunnugir málum þá snýst málið meira um pólitík heldur en tæknileg atriði sem veldur töfunni en
Airbus vísar því á bug að málið snúist um pólitík.
Reglugerðir flugmálayfirvalda í Kína þykja meðal þeirra ströngustu í heimi og hafa yfirvöld tekið sér sinn tíma í að gefa
út flughæfnisvottun og leyfi fyrir flugvélum sem eru smíðaðar utan Kína.
Oft hefur tíðkast að stjórnvöld í Kína gefið út vottun fyrir nýja þotur í tengslum við opinberar heimsóknir frá þjóðhöfðingjum
en Boeing 737 MAX fékk til að mynda vottun í október í fyrra, skömmu áður en Donald Trump, Bandaríkjaforseti, heimsótti
Kína þar sem hann átti fund með Xi Jinping, forseta Kína.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.